Tjón nemur 100 milljónum króna og eldsupptök eru ókunn

Tjón vegna elds sem kviknaði í timburhakkara á Sorpu í Álfsnesi í dag nemur um 100 milljónum króna segir Gunnar Dofri Ólafsson, sviðsstjóri þjónustu-og samskiptasviðs hjá Sorpu. Eldsupptök eru ókunn og segir Gunnar athyglisvert að eldurinn kviknaði nokkru eftir að slökkt var á vélinni.„Það er glettilega algengt að það kvikni í vélum sem meðhöndla rusl,“ segir Gunnar. „Það er alls konar efni sem kemur í gegnum þær sem er ekki ætlað að fara í gegnum þær; gæti þá verið veip eða batterí eða eitthvað svoleiðis. En við vitum ekki hvort það hafi verið staðan hérna því vélin var ekki í gangi þegar kviknaði í henni.“Slökkviliði tókst að ráða niðurlögum eldsins sem kviknaði um hádegisbilið.Timburhakkari á Sorpu í Álfsnesi brann til kaldra kola í dag og tjónið nemur um 100 milljónum króna. Eldsupptök
Tjón nemur 100 milljónum króna og eldsupptök eru ókunn

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd