Mjótt á munum í forsetakosningum og óljóst hvor hafði betur

Svo mjótt var á munum í forsetakosningum í Perú í gær að yfirvöld hafa ekkert getað sagt um það enn hvor það var sem hafði betur, Keiko Fujimori eða Robert Sanchez. Þegar 92 prósent atkvæða höfðu verið talin var staðan þannig að Fujimori var með 50,2 prósent og Sanchez 49,8.Búist er við að Sanchez eigi eftir að saxa á forskotið því það á eftir að telja hluta atkvæða af landsbyggðinni, þar sem hann er talinn njóta meiri stuðnings.Niðurstöðurnar þykja til marks um klofning meðal þjóðarinnar. Fujimori er á hægri ás stjórnmálanna og Sanchez á þeim vinstri. Hún er dóttir Albertos Fujimori sem var forseti landsins frá 1990 til 2000 og var síðar dæmdur í fangelsi fyrir glæpi gegn mannkyni vegna aðgerða gegn skæruliðahreyfingum.Sú þróun hefur sést í nágrannaríkjunum Bólivíu, Chile og Ekvador að fy
Mjótt á munum í forsetakosningum og óljóst hvor hafði betur

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd