Eldur kviknaði í timburhakkara í Sorpu á Álfsnesi fyrir skemmstu. Gunnar Dofri Ólafsson, upplýsingafulltrúi Sorpu segir eldinn utandyra og engum hleypt inn á svæðið nema slökkviliði.Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu er við slökkvistörf á vettvangi. Borgar Valgeirsson verkefnastjóri segir tvo bíla hafa verið senda á Álfsnes en veitir ekki frekari upplýsingar að svo stöddu.Fréttin verður uppfærð eftir því sem fleiri upplýsingar berast.