Lögreglumenn drógu rafbyssur úr slíðri 30 sinnum á fyrsta ársfjórðungi og beittu þeim fimm sinnum. Frá þessu segir í tilkynningu frá ríkislögreglustjóra.Aldrei hefur rafbyssum verið beitt eins oft á einum ársfjórðungi, en lögregla segir erfitt að meta hvort tilfellum fari almennt fjölgandi. Á þriðja ársfjórðungi í fyrra var rafbyssum til dæmis beitt fjórum sinnum, en aldrei á síðasta ársfjórðungi 2025.RÚV / Fréttagrafík/Kristrún Eyjólfsdóttir