„Ég vil bara undirstrika það að Evrópusambandsaðild myndi hafa engin áhrif, engu breyta um þann samning sem er í gildi milli Bandaríkjanna og Íslands, varnarsamninginn frá 1951,“ segir Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra.Var þetta svar hennar við fyrirspurn Stefáns Vagns Stefánssonar, varaformanns Framsóknarflokksins, á Alþingi í morgun. Vísaði Stefán Vagn í grein sem Gunnar Pálsson, fyrrum sendiherra, skrifaði í Morgunblaðið í morgun þar sem hann velti upp hvaða áhrif möguleg ESB-aðild hefði á varnarsamninginn.Gunnar rekur að með aðild yrði Ísland hluti af sameiginlegum varnaráætlunum sambandsins og því sé alls óvíst hvort Bandaríkin telji það í sínum verkahring að annast varnir eins af aðildarríkjum sambandsins. Telur hann í það minnsta að stjórnvöld hefðu þurft að fá úr því