Hópur fólks sem vinnur að kvikmynd um Jónas Hallgrímsson vill að bein hans verði grafin upp, að tekin verði úr þeim sýni og þau send í erfðagreiningu. Gröf Jónasar verður ekki opnuð nema með dómsúrskurði segir þjóðgarðsvörður á Þingvöllum.Þjóðgarðsvörður á Þingvöllum telur það ekki fela í sér mikið rask að opna gröf þjóðskáldsins Jónasar Hallgrímssonar. Það verði þó ekki gert nema með dómsúrskurði.Elín Hirst fjölmiðlakona er í hópi fólks sem hefur rannsakað, þróað og skrifað handrit að heimildamynd um ævi Jónasar Hallgrímssonar.Þegar hún fór að grafreit hans haustið 2024 á Þingvöllum rifjuðust upp fyrir henni sögusagnir um að beinin í reitnum væru hugsanlega ekki Jónasar. Þetta þótti henni miður og vildi eyða óvissunni af virðingu við þjóðskáldið. Beinin höfðu verið grafin upp í Kaupmannah