Sigurður Helgi Pálmason, þingmaður Flokks fólksins, lagði fram frumvarp um breytingu á lögum um mannanöfn á laugardag. Fimmtán þingmenn, bæði úr minnihluta og meirihluta á Alþingi, mæla fyrir frumvarpinu.Verði það samþykkt verður stjórnvöldum heimilt að synja beiðnum um nafnbreytingar, hafi umsækjandi hlotið óskilorðsbundinn fangelsisdóm fyrir alvarlegt brot og verið gert að sæta fangelsi í þrjú ár eða lengur.Sigurður segir ekki eðlilegt að fólk sem hafi framið alvarlega glæpi geti falið sig á bak við nýtt nafn. Hagsmunir almennings og brotaþola vegi þyngra að hans mati.„Við erum ekki að gera þetta þannig að þeir geti aldrei skipt um nafn, þetta er í rauninni bara á meðan þeir eru á sakaskrá og í þessum helstu þungu málum.Hann segir erfitt að kanna hversu margir hafi breytt nafni sínu í kj