Donald Trump gekk út úr viðtali sem birt var um helgina eftir að fréttakona mótmælti staðhæfingum hans um kosningasvindl í Kaliforníu og í forsetakosningunum 20202. Auk þess hafði hann orðið pirraður þegar hann var spurður út í umdeildan skaðabótasjóð og það hvort menn sem játuðu að hafa beitt lögregluþjóna ofbeldi í árásinni á þinghús Bandaríkjanna hefðu átt rétt á því að fá greitt úr sjóðnum.