Vilja koma í veg fyrir aðra Iceland-deilu

Íslensk stjórnvöld ætla í samvinnu við samtök og stofnanir á vettvangi útflutnings að vakta hvernig heitið Ísland eða Iceland er notað erlendis. Meðal annars á að koma í veg fyrir að álíka staða komi upp í framtíðinni líkt og varð þegar breska verslunarkeðjan Iceland skráði heitið sem vörumerki og reyndi að ráða því hvernig það yrði notað. Utanríkisráðuneytið, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Samtök atvinnulífsins, Hugverkastofnun, Icelandic Trademark Holding og Íslandsstofa hafa undirritað samkomulag um að sinna hagsmunagæslu vegna notkunar á landaheitinu Ísland eða Iceland upp á enska tungu. Einn þáttur samstarfsins er að vinna gegn því á alþjóðavísu að landaheiti verði einkavædd í vörumerkjarétti. Vakta á notkun nafnsins erlendis og bregðast við ef sú notkun þykir ganga geg
Vilja koma í veg fyrir aðra Iceland-deilu

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd