Alþjóðleg markmið gera ráð fyrir verndun 30% land- og hafsvæða fyrir 2030. Ísland er vel á veg komið með að ná því markmiði á landi en aðeins 2% hafsvæða falla undir þessa skilgreiningu.Stærstu náttúruverndarsamtök Norðurlandanna héldu árlegan fund sinn á Íslandi í maí. Þema fundarins var verndarsvæði í hafi. Samtökin eru samhljóma um að mikil tækifæri liggi í samstarfi milli landa til þess að koma á fót hafverndarsvæðum þvert yfir landamæri.Þorgerður María Þorbjarnardóttir, formaður Landverndar, segir einkum tvö ráðuneyti koma að málaflokknum, annars vegar umhverfis-, orku-, og loftslagsráðuneytið og hins vegar atvinnuvegaráðuneytið.Í nýrri aðgerðaáætlun um vernd líffræðilegrar fjölbreytni sé ekki sérstaklega fjallað um vernd hafsvæða. > Íslensk stjórnvöld þurfa að taka ákvörðun um að ve