Skólastarf í nær 100 skólum í borginni Utsunomiya í Japan var fellt niður í dag vegna skógarbjörns sem sást á vappi um götur. Hann hefur verið á ferli í þrjá daga. Borgin er í um 100 kílómetra fjarlægð frá höfuðborginni Tókýó.Tugir veiðimanna og lögreglumanna leita bjarnarins. AFP fréttaveitan hefur eftir embættismanni í borginni að ekki sé vitað með vissu hvort björninn sé einn á ferð. Hann er talinn um einn metri að lengd og hefur sést víða um borgina, svo sem í íbúðahverfi, við verslunarmiðstöð, í almenningsgarði og við skóla.Árásum bjarna á menn í þéttbýli í Japan hefur fjölgað síðustu ár. Birnir drápu 13 manns í fyrra.Viðvörunarskilti í Japan vegna bjarna á ferli. Myndin er úr safni og tengist ekki leitinni i Utsunomiya.EPA / FRANCK ROBICHON