Bein Jónasar ekki grafin upp nema með dómsúrskurði

Hópur fólks sem vinnur að kvikmynd um Jónas Hallgrímsson vill að bein hans verði grafin upp, að tekin verði úr þeim sýni og þau send í erfðagreiningu. Gröf Jónasar verður ekki opnuð nema með dómsúrskurði segir þjóðgarðsvörður á Þingvöllum.Þjóðgarðsvörður á Þingvöllum telur það ekki fela í sér mikið rask að opna gröf þjóðskáldsins Jónasar Hallgrímssonar. Það verði þó ekki gert nema með dómsúrskurði.Elín Hirts fjölmiðlakona er í hópi fólks sem hefur rannsakað, þróað og skrifað handrit að heimildamynd um ævi Jónasar Hallgrímssonar.Þegar hún fór að grafreit hans haustið 2024 á Þingvöllum rifjuðust upp fyrir henni sögusagnir um að beinin í reitnum væru hugsanlega ekki Jónasar. Þetta þótti henni miður og vildi eyða óvissunni af virðingu við þjóðskáldið. Beinin höfðu verið grafin upp í Kaupmannah
Bein Jónasar ekki grafin upp nema með dómsúrskurði

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd