Minnst fimmtán fórust í jarðskjálfta

Í það minnsta fimmtán fórust þegar öflugur jarðskjálfti reið yfir Filippseyjar í dag. Byggingar hrundu og yfirvöld vöruðu við hættunni á flóðbylgjum.Jarðskjálftinn var 7,8 að stærð. Margir eftirskjálftar hafa riðið yfir. Sá stærsti þeirra var 6,5 að stærð. Á myndskeiðum sem sjá má á samfélagsmiðlum, og AFP-fréttastofan hefur yfirfarið, má sjá börn grátandi í örmum kennara sinna meðan hús sveiflast fram og til baka og skyndibitastað sem var rústir einar eftir jarðskjálftann. Flóðbylgjuviðvörunin nær til strandhéraða á Filippseyjum, Indónesíu, Taívan, Papúa Nýju Gíneu og Palá. Fólk var hvatt til að hafa sig á brott frá þeim svæðum þar sem flóðbylgja gæti náð á land og skapað hættu. Í einu héraði höfðu 80 prósent íbúa flúið heimili sín og haldið inn í landið og upp í hæðóttara landslag.
Minnst fimmtán fórust í jarðskjálfta

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd