Allt að 16 stiga hiti norðaustan til

Landsmenn mega víðast hvar gera ráð fyrir einhverri vætu í dag. Þó gæti undantekningin verið á Norðausturlandi þar sem verður bjart með köflum. Norðan og austan til er útlit fyrir stinningsgolu og kalda en hægari vindur verður vestan til.Veðurspáin er svohljóðandi:Suðaustan fimm til þrettán metrar á sekúndu, en hægari breytileg átt vestantil. Rigning eða skúrir og hiti 8 til 12 stig, en bjartviðri norðaustanlands með hita að 16 stigum.Austlæg átt 5-13 og rigning eða skúrir á morgun, en léttskýjað á Norðausturlandi. Hiti 10 til 15 stig.
Allt að 16 stiga hiti norðaustan til

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd