Nikol Pashinyan, forsætisráðherra Armeníu, hefur lýst yfir sigri í þingkosningum sem þar voru haldnar í gær. Á blaðamannafundi sem Pashinyan hélt snemma í morgun sagði hann flokk sinn hafa unnið „sögulegan sigur“ í kosningunum.Þegar blaðamannafundurinn var haldinn hafði landskjörstjórn gefið út bráðabirgðaniðurstöður kosninganna. Þá höfðu um 21% atkvæða verið talin. Flokkur Pashinyans fékk 54% þeirra.Kosningarnar, sem eru þær fyrstu síðan Aserbaísjan tók yfir héraðið Nagorno-Karabakh með þeim afleiðingum að yfir 100 þúsund Armenar flúðu heimili sín. Niðurstöður kosninganna hafa verið sagðar ráða því hvort Armenar halli sér meira að Evrópu og fjarlægist hefðbundna bandamenn, eins og Rússa. Pashyinyan hefur lagt áherslu á að styrkja tengslin við Evrópu og ná friðarsamkomulagi við Asera eftir