Xi Jinping forseti Kína heitir nánari samvinnu við Norður-Kóreu. Hann segir vináttu Beijing og Pjongjang vera „óhagganlega“. Frá þessu greina ríkismiðlar í Norður-Kóreu en þangað heldur Xi á morgun, mánudag. Þetta er fyrsta heimsókn Xis til Pjongjang í sjö ár.„Sama hve mikið tímarnir breytast eða hver þróunin verður á alþjóðasviðinu, þá verður vinátta Kína og Norður-Kóreu ævinlega óhagganleg,“ skrifar Xi í grein sem birtist á forsíðu Rodong Sinmun.Kim Yo-jong, sem er systir Kim Jong-uns og jafnframt einn valdamesti ráðgjafi hans, sá ástæðu til að árétta að staða Norður-Kóreu sem kjarnorkuveldis væri óumsemjanleg.Í kjölfar fundar Xis og Donalds Trumps Bandaríkjaforseta í síðasta mánuði birti Hvíta húsið upplýsingaskjal um fundinn. Þar kom fram að Xi og Trump hefðu staðfest sameiginlegt mark