Hver á að veita þjónustuna?

Sjúkraliðafélag Íslands hefur sent fjárlaganefnd Alþingis umsögn um fjármálaáætlun stjórnvalda fyrir árin 2027–2031. Félagið tekur undir mikilvægi ábyrgrar meðferðar opinbers fjár, sjálfbærra ríkisfjármála og skýrrar forgangsröðunar. En ábyrg fjármálastjórn má ekki byggjast á því að horfa fram hjá þeirri staðreynd að heilbrigðis-, öldrunar- og velferðarþjónusta er fyrst og fremst veitt af fólki. Stóra spurningin sem þarf að svara er einföld. Hver á að veita þjónustuna?

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd