Óskilamunir úr Uber til sýnis: gervitennur, lifandi humar og trúlofunarhringur

Samgöngufyrirtækið Uber setti upp sýningu í samgöngumiðstöðinni í World Trade Center á Manhattan í New York með munum sem fólk hefur gleymt, eða skilið eftir, í bílum fyrirtækisins. Sýningin var sett upp í tilefni af tíundu árlegu skýrslu fyrirtækisins um óskilamuni.Þó að ýmsir hlutir séu til sýnis, eins og hafnabolti áritaður af goðsögninni Babe Ruth, trúlofunarhringur, gínuhaus og ýmislegt matarkyns, er einn hlutur sem ber höfuð og herðar yfir aðra óskilamuni.„Algengasti óskilamunurinn ár eftir ár er sími. Bara í fyrra fundum við meira en milljón síma,“ segir Claire Schatz, yfirmaður samskiptasviðs hjá Uber.
Óskilamunir úr Uber til sýnis: gervitennur, lifandi humar og trúlofunarhringur

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd