Íran hefur hafið flugskeyta- og drónaárásir að norðanverðu Ísrael í kjölfar þess að ísraelski herinn gerði loftárásir á suðurhluta Beirút í Líbanon fyrr í dag. Ísraelski herinn segir loftvarnakerfi landsins hafa stöðvað öll flugskeyti sem skotið var að landinu hingað til. Breska ríkisútvarpið greinir frá.Benjamín Netanjahú forsætisráðherra Ísraels sagði að árásirnar hefðu beinst að „höfuðstöðvum hryðjuverkasamtaka“ í Dahieh-hverfinu í Beirút og væru svar við flugskeytaárásum Hezbollah á ísraelskt yfirráðasvæði. Hezbollah hefur staðfest að hafa skotið á herstöðvar Ísraels.Í yfirlýsingu frá íranska byltingarverðinum kemur fram að árásin sé viðvörun til Ísraelshers vegna loftárása þeirra á Líbanon. Þar er jafnframt hótað frekari árásum á bæði ísraelsk og bandarísk skotmörk á svæðinu verði árá