Friður virðist ekki í augsýn milli Írana og Bandaríkjamanna. 100 dagar eru síðan Bandaríkin og Ísrael hófu loftárásir á Íran. VÖKNUÐU VIÐ SPRENGJUGNÝ 28. FEBRÚAR Íranar vöknuðu við sprengjugný að morgni 28. febrúar. Hundruð almennra borgara létust, meðal annars yfir hundrað nemendur í stúlknaskóla.Auk almennra borgara féll fjöldi háttsettra embættismanna. Árásir voru gerðar á heimili æðstaklerksins Alis Khamenei. Fyrst var talið að hann hefði lifað af en nokkrum dögum síðar var andlátið staðfest. Sonur hans, Mojtaba Khamenei, var útnefndur æðstiklerkur en hann hefur ekki sést opinberlega síðan.Íranar svöruðu með umfangsmiklum loftárásum á Ísrael og nágrannalönd sín en þar eru Bandaríkin með margar herstöðvar. Lofthelgi margra þeirra var lokað og Íslendingar áttu erfitt með að komast bur