Hér erum við að tala um gæsafjölskyldu við Lyfjaver við Suðurlandsbraut 22 þar sem gæsamamman var með ungana sína á hættulegum stað við mikla umferðargötu.Starfsfólk hafði því samband við Dýraaðstoð höfuðborgarsvæðisins, sem mætti á staðinn ásamt starfsmanni frá Fjölskyldu- og húsdýragarðinum til að bjarga fjölskyldunni.Farið var með mömmuna og ungana í búr í garðinum. Þar una þau sér öll vel ásamt nokkrum öðrum gæsum með ungana sína.„Við erum með tíu unga hérna núna og þær eru fjórar að passa upp á þá. Þetta er bara orðið eins og einn stór leikskóli, þau eru bara öll að hugsa um þetta saman, eru öll hérna og virðast vera mjög ánægð hérna,” segir Helena Gylfadóttir, deildarstjóri Dýraþjónustu Reykjavíkur og dýradeildar Húsdýragarðsins.Helena er með sérstakt fóður fyrir fuglana, sem er anda