Íranir gerðu í kvöld loftárás á skotmörk á Ísrael í kjölfar þess að Ísraelsmenn gerðu árásir í höfuðborg Líbanon fyrr í dag þrátt fyrir vopnahlé eigi að vera í gildi þar. Þetta er fyrsta árás Írana á Ísrael í mánuð, en loftvarnarkerfi Ísraela skaut niður tvær eldflaugar að sögn hersins.