D-listi Sjálfstæðismanna og óháðra, E-listi Strandar og Voga og L-listi Lista fólksins hafa myndað nýjan meirihluta í Sveitarfélaginu Vogum. Björg Ásta Þórðardóttir, oddviti Sjálfstæðismanna og óháðra, verður bæjarstjóri. Þá verður Birgir Örn Ólafsson, oddviti E-listans, formaður bæjarráðs og Kristinn Björgvinsson, oddviti L-listans, forseti bæjarstjórnar.Greint er frá meirihlutasamstarfinu í fréttatilkynningu.„Nýr meirihluti mun byggja á þeim sterka grunni sem lagður var á liðnu kjörtímabili og því góða samstarfi sem tókst um mikilvæg verkefni fyrir sveitarfélagið. Á sama tíma verður horft fram á veginn með áherslu á traustan rekstur, öfluga þjónustu, betri upplýsingagjöf og markvissa uppbyggingu í góðu samtali við íbúa,“ segir þar.Samstarfið byggi á málefnasamningi sem miði að því að sty