Stjórnlaus þróun gervigreindar mikið áhyggjuefni

Halldóra Mogensen hefur verið skipuð í vísindanefnd á vegum Evrópusambandsins sem er ætlað að kortleggja málaflokk gervigreindar og veita ráðgjöf um innleiðingu reglna er hana varðar, bæði fyrir sambandið og staðbundin yfirvöld.Hún segir yfirvöld í heiminum hafa sofið á verðinum hvað varðar að ná utan um málaflokk gervigreindar með lagaumgjörð. Engin merki séu um að hægja fari á þróun gervigreindar og verðmætasköpun vegi meira en spurningar um öryggi og siðferðisleg álitamál.Halldóra var þingmaður Pírata frá 2016-2024. Vísindanefndin er skipuð 60 sérfræðingum sem sitja í henni til tveggja ára. Hún heyrir undir framkvæmdastjórn Evrópusambandsins.„Þetta er vísindanefnd óháðra sérfræðinga um gervigreind og þetta er hugsað sem ein nefnd sem á að vera ráðgjafandi og til aðstoðar við innleiðingu
Stjórnlaus þróun gervigreindar mikið áhyggjuefni

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd