Loka 20 hjúkrunarrýmum á Selfossi

Tuttugu hjúkrunarrýmum á Hjúkrunarheimilinu Fossheimum og Ljósheimum á Selfossi verður lokað vegna breytinga. Til stendur að loka einni af tveimur hæðum hjúkrunarheimilisins.Skortur hefur verið á hjúkrunarrýmum undanfarin misseri. Ráðherra kynnti áætlun um uppbyggingu í mars. Þá voru yfir sjö hundruð á biðlista.Díana Óskarsdóttir, forstjóri Heilbrigðisstofnunar Suðurlands, segir ákvörðun um lokun hjúkrunarrýmanna eiga sér langan aðdraganda.„Við erum að fara í miklar framkvæmdir og endurbætur á núverandi húsnæði, auk þess að fara í nýbyggingu. Hluti af því er að loka 20 hjúkrunarrýmum sem eru staðsett inni á sjúkrahúsinu og tilheyra núna Fossheimum. Í dag eru það um 40 hjúkrunarrými þannig að það er ein hæð sem mun fara undir aðra starfsemi. En við munum samt tryggja, með ráðuneytinu, að þe
Loka 20 hjúkrunarrýmum á Selfossi

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd