Tveir erlendir ferðamenn nutu aðstoðar björgunarsveita á Mælifellssandi í nótt. Ferðalangarnir höfðu lagt upp frá Suðurlandi og ætlað Fjallabak á reiðhjólum. Þegar þeim leist ekki á blikuna, og treystu sér ekki til að halda för sinni áfram eftir að við þeim blasti mikill snjór og krapi, óskuðu þeir eftir aðstoð.Greint er frá aðgerðinni í fréttatilkynningu frá Slysavarnarfélaginu Landsbjörgu.Þar segir að ferðamennirnir hafi náð sambandi í gegnum gervihnött. Í kjölfarið hafi stjórnstöð Landhelgisgæslunnar fengið tölvupóst frá aðstandenda annars þeirra sem greindi frá stöðunni og að þeir þyrftu á hjálp að halda.Jón Þór Víglundsson, upplýsingafulltrúi Landsbjargar segir ferðalangana hafa notast við búnaðinn inReach til að ná sambandi við gervihnött.Björgunarsveitirnar Dagrenning, Stjarnan og K