Fundað verður í kjaradeilu Félags íslenskra atvinnuflugmanna og Icelandair klukkan 16 á morgun. Í samtali við fréttastofu segir Ástráður Haraldsson, ríkissáttasemjari, að ekki sé vitað hvort deiluaðilar færist nær hvor öðrum. Skýrari mynd fáist á það á fundinum.