Kosið er til þings í Armeníu í dag. Nýjustu kannanir sýna að flokkur forsætisráðherrans sé með mest fylgi en niðurstöður kosninganna ráða því hvort Armenar halli sér meira að Evrópu og fjarlægist hefðbundna bandamenn, eins og Rússa. FYRSTU KOSNINGARNAR EFTIR YFIRTÖKU ASERA Á NAGORNO-KARABAKH Þetta eru fyrstu kosningarnar í landinu síðan það missti yfirráð yfir héraðinu Nagorno-Karabakh 2023.Nikol Pashinyan, forsætisráðherra landsins, sækist eftir endurkjöri. Nýjustu kannanir sýna að flokkur hans sé með mest fylgi, 32 prósent, en um 40 prósent kjósenda segjast ekki treysta neinum stjórnmálamanni.Síðan Pashinyan náði kjöri 2018 hefur hann stýrt landinu frá Rússlandi og reynt að styrkja tengsl við Vesturlönd. Fái hann og flokkur hans sterkt umboð eftir kosningar getur hann fylgt eftir aðal