Sigurjón Þórðarson formaður fjárlaganefndar Alþingis segir enn stefnt að því að skila hallalausum fjárlögum á næsta ári þrátt fyrir versnandi efnahagshorfur. Meirihluti nefndarinnar telur ekki þörf á að gera breytingar á fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar.Gert er ráð fyrir að ríkissjóður verði rekinn með rúmlega eins milljarðs króna afgangi á næsta ári samkvæmt fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar til næstu fimm ára. Fjármálaráðherra mælti fyrir áætluninni í mars en síðan þá hafa efnahagshorfur tekið breytingum. Verðbólgan hefur reynst þrálát, stýrivextir hækkað og almennt gert ráð fyrir að hagvöxtur verði minni. Þá átti stytting atvinnuleysisbóta úr 30 mánuðum í 18 að lækka útgjöld ríkissjóðs en styttingin varð minni eftir að breytingar voru gerðar á málinu á Alþingi.Fjármálaáætlunin var afgr