Sjómannadagurinn er haldinn hátíðlegur í dag. Víða um land er fjölbreytt dagskrá með skemmtiatriðum, tónleikum og minningarathöfnum svo dæmi séu tekin.Íslendingar hafa haldið upp á sjómannadaginn allt frá árinu 1938. Deginum er ætlað að heiðra íslenska sjómenn, að heiðra minningu þeirra sem fórnað hafa lífi sínu á sjó og að minna á mikilvægi sjómennskunnar fyrir íslensku þjóðina.Dagskrá vegna sjómannadagsins hófst víða á föstudag eða jafnvel fyrir helgi. Eftir hádegi í dag er nóg um að vera og ættu ungir sem aldnir að geta fundið eitthvað við sitt hæfi um allt land.Í Reykjavík verður til að mynda boðið upp á Bryggjusprell, útleiki og skoðanaferðir ásamt fjölda tónlistaratriða. Þá verða sjómenn heiðraðir í Hörpu klukkan 15 þar sem Karlakórinn Fóstbræður og Lúðrasveit Reykjavíkur leika við h