Aldrei hafa fleiri flogið um Akureyrarflugvöll en árið 2025. Með tilkomu reglulegs flugs EasyJet hefur farþegum fjölgað jafnt og þétt. Þeir voru rúmlega 107 þúsund árið 2025 samanborið við rúmlega 92 þúsund árið 2023. Síðustu þrjú ár hefur EasyJet flogið reglulega um Akureyrarflugvöll frá október fram í apríl og farþegum yfir vetrartímann því fjölgað mikið. Framkvæmdastjóri Markaðsstofu Norðurlands segir þetta að miklu leyti ferðaþjónustunni að þakka, sem lagði mikla vinnu í að gera þetta að veruleika.„Þetta þýðir auðvitað, ef við förum að leika okkur með gistinætur, að við erum að fá svona 60-80 þúsund gistinætur aukalega inn á lágönn hjá okkur og það aftur gerir að verkum að fyrirtækin geta farið að vaxa og dafna og fjárfesta og bæta við heilsárstörfum. Það er ótrúlega margt sem fer í ga