Yfir milljón hlýddi á messu páfa í Madríd í morgun

Yfir 1,2 milljónir manns hlustuðu á messu páfans á Cibeles-torgi í Madríd á Spáni í morgun. Páfinn hvatti Spánverja til að iðka kaþólska trú.Spænsku konungshjónin voru meðal þeirra sem fylgdust með messunni. Leó páfi kom til Spánar í gær og er í sjö daga heimsókn, þeirri fyrstu í 15 ár.Í predikun sinni hvatti páfinn Spánverja til að líta ekki á trúarbrögð sem safn fortíðar sem hægt væri að heimsækja heldur sem „skóla trúar sem hægt sé að sækja í enn þann dag í dag.“Um 56 prósent Spánverja líta á sig sem kaþólikka í dag, samkvæmt nýrri könnun Rannsóknarmiðstöðvar félagsfræðinnar, sem er sjálfstæð ríkisstofnun. Þetta hlutfall hefur lækkað mikið frá 1970 þegar 90 prósent Spánverja sögðust vera kaþólikkar.AFP-fréttaveitan ræddi við nokkra sem hlýddu á messuna. Nico Aldeanueva, sem er frá Phila
Yfir milljón hlýddi á messu páfa í Madríd í morgun

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd