Nýfallinn dómur í máli ekkju Andemariam Beyene gegn íslenska ríkinu vekur upp ýmsar spurningar um ábyrgð lækna þegar kemur að umönnun og meðferð sjúklinga þeirra. Dómurinn virðist ganga harðar fram í því að gera Tómas Guðbjartsson lækni ábyrgan fyrir örlögum Andemariam en gert var í rannsóknarskýrslu Háskóla Íslands og Landspítala. Á sama tíma er hins vegar nokkuð langt seilst í því að ætla lækninum að setja persónulegan metnað sinn framar hagsmunum skjólstæðings síns.