Aríel Pétursson, formaður Sjómannadagsráðs höfuðborgarsvæðisins, segir sjómannadaginn hafa mikla merkingu í huga sjómanna. Félögin sem standi að baki Sjómannadagsráði séu hvergi af baki dottin og ætli að svara ákalli samfélagsins um áframhaldandi uppbyggingu dvalarheimila og íbúða fyrir aldraða.