Breiðafjarðaferjan Baldur er á leið suður fyrir land. Hún siglir á milli Landeyjahafnar og Vestmannaeyja frá og með morgundeginum, 8. júní, að beiðni Vegagerðarinnar. Baldur fór síðustu áætlunarferðina á Breiðafirði í bili í gær.Ferjan Særún mun sinna siglingum á milli Stykkishólms og Flateyjar á Breiðafirði í fjarveru Baldurs. Áætlað er að Baldur hefji á ný áætlunarsiglingar um Breiðafjörð föstudaginn 19. júní.Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra kynnti færslu Baldurs í Eyjum 2. júní. Á vef Vegagerðarinnar segir að samráð hafi verið haft við heimamenn í Eyjum og Breiðafirði vegna breytinganna sem eru til komnar vegna vélarbilunar Herjólfs.Á vefnum segir að vegna mikilla anna í flutningum til og frá Vestmannaeyjum á næstunni hafi verið talið nauðsynlegt að Baldur bættist við ferjuþjónustu t