Keir Starmer forsætisráðherra Bretlands hefur boðið Volodymyr Zelensky forseta Úkraínu, Emmanuel Macron forseta Frakklands og Friedrich Merz kanslara Þýskalands til Downingstrætis 10 á morgun. Þar ætla þjóðarleiðtogarnir að ræða frekari stuðningsaðgerðir til handa Úkraínu, að því er segir í frétt The Guardian.Ekkert lát hefur verið á árásum bæði Úkraínuhers og Rússlandshers í vikunni sem er að líða. Zelensky stakk upp á því við Vladimír Pútín Rússlandsforseta í vikunni að leiðtogarnir myndu hittast augliti til auglitis til að ræða leiðir að friði. Pútín hafnaði tillögunni.Bretar og Frakkar leiða bandalag hinna viljugu en það er hópur ríkja sem saman vinnur að öryggistryggingum að innrásarstríðinu loknu. Ríkin tvö ásamt Þjóðverjum eru einhverjir traustustu bandamenn Úkraínu þessi misserin.Í