Sjómannadagurinn er á morgun en víða um land er tekið forskot á sæluna, brugðið á leik við hafnir, farið í siglingar og stiginn dans í dag. Í Bolungarvík hófust hátíðarhöldin í gær og þar var mikið um dýrðir í dag.Bryndís Elsa Guðjónsdóttir, markaðs- og kynningarfulltrúi Bolungarvíkur, segir veðurguðina hafa verið með Bolvíkingum í liði í dag.„Við fengum alveg frábært veður. Það var spáð rigningu en hún lét ekki sjá sig. Ég finn það alveg núna að ég hefði átt að vera með sólarvörn,“ segir Bryndís.Fjölskyldudagskrá sjómannadagsins í Bolungarvík einkenndist af tónlistarflutningi. Börnin gátu skemmt sér í hoppuköstulum og fengið andlitsmálningu. Þá var róðrakeppnin á sínum stað.Bryndís segir að á morgun sé dagskráin hátíðlegri. Boðið verður upp á guðsþjónustu og að henni lokinni verða blómsve