Duffy stígur á svið á ný eftir 15 ára hlé

Söngkonan Duffy hefur tilkynnt að hún muni halda sína fyrstu tónleika í rúm 15 ár en hún hvarf nánast alfarið úr sviðsljósinu eftir að hafa verið beitt ofbeldi sem hafði áhrif á líf hennar og feril.Duffy, sem þekktust er fyrir lagið sitt Mercy sem kom út árið 2008, greindi frá því árið 2020 að henni hefði verið byrlað, rænt og beitt kynferðisofbeldi. Í kjölfarið dró hún sig út úr opinberu lífi og tónlistarheiminum um árabil.Söngkonan virðist nú vera að snúa aftur. Á Instagram greindi hún frá því að hún stefni á að halda fámenna tónleika í London: „Ég held leynilega og persónulega tónleika í London þann 5. júlí í næsta mánuði og það myndi gleðja mig mjög ef einhver ykkar gætu verið með,“ skrifaði hún. Hún tók fram að aðeins takmarkaður fjöldi gesta kæmist að en sagðist jafnframt hlakka miki
Duffy stígur á svið á ný eftir 15 ára hlé

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd