Íranar eiga aðeins um fimmtung eftir af flugskeytum, mun minna en áður en Bandaríkin og Ísrael hófu árásir 28. febrúar. Þetta sagði Bandaríkjaforseti í viðtali í Meet The Press hjá NBC-sjónvarpsstöðinni í nótt. Ástæða þess að ekki hafi tekist að semja um stríðslok við Írana sé að þeir séu of sterkir og stoltir til þess. ÍRANAR „STERKIR OG STOLTIR“ „Þeir eru sterkir, þeir eru stoltir. Þetta eru hlutir sem þeir héldu að þeir þyrftu aldrei að gera. Þeir hafa ekkert val og það tekur smá tíma,“ sagði Donald Trump Bandaríkjaforseti í viðtalinu þegar fréttamaðurinn innti hann eftir svörum um af hverju það tæki svo langan tíma að ná saman um stríðslok. Forsetinn hefur sagt Írana örvæntingarfulla að ná samkomulagi við Bandaríkjamenn.Sprengjuárásir hafa gengið á báða bóga milli Írans og Bandaríkj