Þingfundi slitið eftir gagnrýni á fundarhald á sjómannadagshelgi

Þingfundi var slitið klukkan 17:16 í dag. Til umræðu var frumvarp til laga um innviðafélag um fjármögnun og uppbyggingu mikilvægra samgöngumannvirkja. Þingmenn minnihlutans höfðu gagnrýnt það fyrirkomulag að boðað væri til þingfundar laugardaginn fyrir sjómannadag.Jón Gunnarsson þingmaður Sjálfstæðisflokksins var meðal þeirra sem gagnrýndu fundarboðið.„Ég hafði bara ekki áttað mig á því fyrr en seint í gærkvöldi að til stæði að funda hér í dag á hátíðarhelgi sjómanna. Það hefur verið samkomulag um það síðan sjómannadagurinn var settur fyrst árið 1938 á Ísafirði og í Reykjavík og haldinn hátíðlegur að það væri ekki fundað á þessum degi, á þessari helgi. Það er verið að brjóta blað í sögu þingsins og sýna auðvitað sjómannastéttinni og fjölskyldum sjómanna algera vanvirðu með því að boða hér
Þingfundi slitið eftir gagnrýni á fundarhald á sjómannadagshelgi

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd