Tímamót urðu í gær þegar dekkjaverkstæði N1 á Ægisíðu var lokað. Af því tilefni var kveðjuathöfn í dag á milli klukkan 14 og 16. Meðal starfsmanna er Sæmundur Jóhannesson, orðinn 73 ára, sem hefur starfað hjá N1 og áður Esso í tæp 25 ár, þar af síðustu 10 verið á Ægisíðu.