Meirihluti umhverfis- og samgöngunefndar Alþingis vill færa fjármuni sem voru eyrnamerktir fyrirhugaðri færslu hringvegar um Egilsstaði og gerð hringtorgs, í það að flýta framkvæmdum við veginn um Öxi. Dagmar Ýr Stefánsdóttir, Sveitarstjórn Múlaþings segir að hún finni fyrir tómlæti og að íbúar landshlutans upplifi sig sem afgangsstærð, á þá sé ekki hlustað. Framhald síðari umræðu um samgönguáætlun er á dagskrá þingfundar í dag.„Það sem er verið að gera er verið að flytja fjármagn innan sama svæðis yfir í annað verkefni í staðinn fyrir að gera, eins og við höfum lagt áherslu á, að það yrðu settir auknir fjármunir inn á svæðið,“ segir Dagmar Ýr.Hún hafði vonast eftir auknu fjármagni en ekki að það sé flutt milli verkefna. Auk þess telji hún að fjármunirnir nægi ekki til þess að ráðast í fra