Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur á Reykjanesbraut

Einn var fluttur á slysadeild eftir tveggja bíla árekstur á Reykjanesbraut, nærri álverinu í Straumsvík, á fimmta tímanum. Þorsteinn Gunnarsson aðstoðarvarðstjóri hjá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins segir viðbragðsaðila enn að störfum á vettvangi og viðbúið að tafir geti orðið á umferð. Samkvæmt upplýsingum fréttastofu var áreksturinn á akrein sem stefnir frá Hafnarfirði og út á Reykjanes.Álverið í Straumsvík. Áreksturinn varð á þessum vegi.RÚV / Ragnar Visage
Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur á Reykjanesbraut

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd