Stefna Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs hefur aldrei átt ríkara erindi, segir Rósa Björk Brynjólfsdóttir, formaður flokksins. Hún hélt ræðu á flokksráðsfundi VG í Mosfellsbæ í dag þar sem hún ávarpaði félagsmenn og boðaði pólitíska endur„Erindi okkar í VG hefur líklega aldrei verið mikilvægara heldur en núna, á tímum bakslags í kynjajafnrétti, á tímum stríðsátaka og hernaðarhyggju og á tímum þegar útlendingaandúð er sýnilegri meira en nokkru sinni fyrr víða í samfélaginu og þegar stöðugt er veist að mannréttindum fólks á flótta,“ segir Rósa í viðtali við fréttastofu.„Þegar ríkisstjórn Íslands býr til brottvísunarbúðir fyrir fólk sem leitar eftir alþjóðlegri vernd og vill ekki láta senda sig burt komum við í Vinstri grænum til sögunnar með okkar skýru stefnu og okkar áherslu um sterk