Liðsmenn salvadorska glæpagengisins MS-13 eiga yfir höfði sér mörg þúsund ára fangelsisrefsingu fyrir tugþúsundir glæpa.Fjöldaréttarhöld yfir 485 liðsmönnum gengisins hófust í apríl. Þeir eru alls sakaðir um 47 þúsund glæpi á árunum 2012 til 2022.Nayib Bukele, forseti El Salvador, lýsti yfir neyðarástandi og stríði á hendur glæpagengjum árið 2022. 93 þúsund liðsmenn glæpagengja hafa verið handteknir síðan.Meðal sakborninga í fjöldaréttarhöldunum sem nú standa yfir eru 22 leiðtogar MS-13 gengisins. Þeir hafa þegar verið sakfelldir fyrir fjölda glæpa, en meðal þess sem þeir eru sakaðir um að þessu sinni eru 29 þúsund morð.Varasaksóknari í El Salvador segir að þessir menn eigi aldrei eftir að yfirgefa fangelsiskerfið.Einn ákærðu er hinn 47 ára Borromeo Henriques, stundum kallaður Litli djöful