Rússnesk yfirvöld segja Úkraínuher hafa gert óvæntar drónaárásir á Sankti Pétursborg í dag. Þar stendur nú yfir árleg efnahagsráðstefna. Vladimír Pútín Rússlandsforseti ávarpaði ráðstefnuna í gær og sagði þá tilgangslaust að funda með forseta Úkraínu fyrr en friðarsamningur lægi fyrir.Rússar segja meira en 140 dróna hafa verið skotna niður í kringum borgina og íbúar hafa verið hvattir til að halda sig innandyra í fyrsta skipti síðan stríðið hófst fyrir meira en fjórum árum.Volodymyr Zelensky, forseti Úkraínu, segir herinn hafa hæft hernaðarleg skotmörk með árásum sínum sem hafi verið viðbragð við árásum Rússa.Yevhen Karas, yfirmaður einnar þeirra hersveita sem tóku þátt í drónaárásunum, sagði í samtali við breska fjölmiðilinn BBC að auðvelt væri að hitta skotmörk innan Rússlands.„Við fljúg