Sjálfstæðisflokkurinn gengur til meirihlutasamstarfs með Framsóknarflokknum í Kópavogi þrátt fyrir að hafa hreinan meirihluta í bæjarstjórn. Ásdís Kristjánsdóttir verður áfram bæjarstjóri. Hún segir einhug hafa verið um að halda samstarfinu áfram.Bæjarstjóri Kópavogs segir einhug hafa ríkt innan flokksins um áframhaldandi meirihlutasamstarf með Framsóknarflokki. Hún segir til standa að skoða möguleika á uppbyggingu eigin hitaveitu í bæjarfélaginu.„Það hefur gengið vel að vinna með framsóknarflokknum og sérstaklega Orra og það ríkir traust á milli okkar. Og við töldum að það væri til hagsbóta fyrir ekki bara Kópavogsbæ heldur Kópavogsbúa að þessir tveir flokkar myndu halda áfram að vinna næstu fjögur árin og byggja upp okkar bæ og gera hann enn betri með okkar áherslum,“ segir Ásdís.Flokkar