Bergþór Bjarnason verður næsti sveitarstjóri Norðurþings

Bergþór Bjarnason tekur við starfi sveitarstjóra í Norðurþingi frá og með 15. júní. Fram kemur í frétt Vikublaðsins að samkomulag hafi náðst á milli nýs meirihluta sveitarstjórnar og Bergþórs, sem gegnt hefur starfi fjármálastjóra undanfarin ár ásamt því að vera staðgengill sveitarstjóra.Samningur um ráðningu Bergþórs verður undirritaður að loknum fyrsta sveitarstjórnarfundi nýrrar sveitarstjórnar í næstu viku.Sjálfstæðisflokkur, Samfylking, Framsóknarflokkur og Óskalisti skipa meirihluta sveitarstjórnar í Norðurþingi. Málefnasamningur flokkanna fjögurra var undirritaður í upphafi mánaðar.RÚV / Kristófer Óli Birkisson
Bergþór Bjarnason verður næsti sveitarstjóri Norðurþings

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd