Sjálfstæðisflokkurinn og Framsóknarflokkurinn hafa ákveðið að halda áfram meirihlutasamstarfi flokkanna í Kópavogi. Það er þrátt fyrir að Sjálfstæðisflokkurinn hafi fengið hreinan meirihluta bæjarfulltrúa í sveitarstjórnarkosningum.Í fréttatilkynningu frá Sjálfstæðisflokknum í Kópavogi segir að Ásdís Kristjánsdóttir verði áfram bæjarstjóri.Meirihlutaflokkarnir boðuðu til kynningar á meirihlutasáttmála sínum klukkan 14 í dag við Geðræktarhús Kópavogs. Hann byggir á sjö megináherslum sem fela í sér 55 verkefni sem sett verða í forgang yfir kjörtímabilið.„Lögð er áhersla á áframhaldandi ábyrgan rekstur sveitarfélagsins þar sem afraksturinn skili sér til heimila í formi betri þjónustu og lægri skatta, þar á meðal fasteignagjalda sem meirihlutinn leggur áherslu á að verði áfram þau lægstu meðal