Armenar ganga að kjörborðinu á morgun undir miklum efnahagslegum þrýstingi frá Rússum. Forsætisráðherra landsins freistar þess að vera endurkjörinn og styrkja tengslin við Evrópu enn frekar. SAMBANDIÐ SÚRNAÐI EFTIR NAGORNO-KARABAKH Rússland er stærsta viðskiptaþjóð Armeníu og samband þeirra á milli hefur verið náið áratugum saman, enda var Armenía hluti af Sovétríkjunum. Eftir að Aserbaísjan tók yfir stjórn héraðsins Nagorno-Karabakh 2023, með þeim afleiðingum að yfir hundrað þúsund Armenar flúðu, tók sambandið að súrna.Armenum þótti, mörgum hverjum, viðbrögð Rússa við því skipta sköpum. Þrátt fyrir öryggissamstarf Rússa og Armena, meðal annars með rússneskum friðargæsluliðum í Nagorno-Karabakh, stóðu þeir ekki í vegi fyrir Aserum.Nikol Pashinyan, forsætisráðherra Armeníu, tók fyrst við